06.10.1934
Neðri deild: 1. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 29 í B-deild Alþingistíðinda. (76)

Sætaskipun

Forseti (JörB):

Það er rétt hjá hv. þm., að búið er að tölusetja sætin við ytri borðin og þingmenn hafa dregið um þau. Ég hefi tekið eftir, að nokkrir hv. þm. hafa tekið sér sæti annarsstaðar, og hefi ég bent á ákvæði þingskapanna um það, að þegar þm. kveðja sér hljóðs, skuli þeir tala frá sætum sínum eða ræðustóli. Enn sem komið er hafa hv. þm. ekki talað annarsstaðar en frá sætum sínum, og geri ég ráð fyrir, að áður en til þess kemur verði búið að koma þessu í lag.