19.10.1934
Neðri deild: 14. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 748 í B-deild Alþingistíðinda. (871)

16. mál, eldspýtur og vindlingapappír

Frsm. meiri hl. (Ásgeir Ásgeirsson):

Meiri hl. n. leggur til, að frv. þetta verði samþ. Það er ákaflega einfalt tekjuöflunarfrv. Það er ekki óalgengt, að eldspýtur séu þannig notaðar til þess að afla ríkistekna, og hefi ég ekki annað um það að segja heldur en það, sem allir vita, að hagur ríkissjóðs er þannig nú, að ekki veitir af að finna einhverjar nýjar tekjugreinar.