27.11.1935
Neðri deild: 84. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2419 í B-deild Alþingistíðinda. (120)

Afgreiðsla þingmála

Pétur Ottesen:

Ég tek svar hæstv. forseta þannig, að hann ætli að skerast í leik, svo að við flm. frv. getum fengið að vita eitthvað um þetta hið allra bráðasta. Það stendur nú þannig á, að samþ. þessa frv. gæti orðið til þess að spara ríkissjóði 25 þús. kr. útgjöld á næsta ári. Þetta er atriði, sem vert er að athuga.