06.11.1935
Neðri deild: 66. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2435 í B-deild Alþingistíðinda. (149)
Þingfréttaflutningur í útvarpi
Forseti (JörB):
Ég vil beina því til hv. þdm. að ræða þetta mál ekki að þessu sinni á svo breiðum grundvelli. Þetta mál, sem nú er farið að ræða, er í dagskránni, og þegar það í dag verður tekið til umr., gefst hv. þdm tækifæri til að upplýsa það betur.