18.02.1935
Efri deild: 5. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í B-deild Alþingistíðinda. (17)

Kosning fastanefnda

Þorsteinn Briem:

Ég vil leyfa mér að beina þeim tilmælum til hinna flokkanna, að þeir fallist á, að um kosning landbn. fari á sama veg og á síðasta þingi, þannig að sá flokkurinn, sem ekki hefir atkvæðamagn til þess að kjósa mann í n., eigi kost á því að eiga eitt sæti í n., með því að n. verði skipuð fleiri mönnum en þingsköp mæla fyrir. Það má vera, að flokkarnir séu ekki við því búnir að svara þessum tilmælum mínum nú þegar, en ég vænti þess að fá var síðar við þessum tilmælum.