19.10.1935
Efri deild: 48. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1152 í B-deild Alþingistíðinda. (1753)

127. mál, Skuldaskilasjóður vélbátaeigenda

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Sjútvn. flytur þetta frv. eftir tilmælum stjórnar skuldaskilasjóðs. Í grg. er gerð grein fyrir frv., og þess vegna tel ég óþarft að endurtaka það hér. Ég geri ráð fyrir, að hv. deild sýni málinu þann velvilja, að láta það ganga áfram.

Ég vil að endingu taka það fram, að í 2. gr. hefir handritið mislesizt. Þar stendur „e-lið“, en á að vera: b-lið. — Sé ég svo ekki ástæðu til þess að fjölyrða frekar um frv. þetta.