15.02.1935
Neðri deild: 1. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2454 í B-deild Alþingistíðinda. (198)

Starfsmenn þingsins

Thor Thors:

Út af ræðu hæstv. forseta vil ég aðeins geta þess, að ég hefi yfirleitt ekki orðið var við neinar óánægjuraddir um það frá hv. þm., að þeir menn, sem gegnt hafa þessum störfum á undanförnu, væru ekki að öllu leyti vel til þess fallnir. Og verði ekki hreyft mótmælum gegn þessum orðum mínum, vænti ég, að þeir verði ekki flæmdir burtu að ástæðulausu.