25.10.1935
Neðri deild: 57. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1310 í B-deild Alþingistíðinda. (2149)

136. mál, sameining Blönduóskauptúns í eitt hreppsfélag

Flm. (Guðbrandur Ísberg):

Af því að þetta er 1. umr. málsins, vil ég aðeins út af þessari hjartnæmu ræðu hv. þm. V.-Húnv. undirstrika þau orð hans og gera að mínum orðum, að ég óska, að allshn. athugi gaumgæfilega þau rök, sem færð eru fram fyrir þessu frv. Í öðru lagi vil ég benda hv. allshn. á, að hér í lestrarsalnum liggja frammi ýms skjöl viðkomandi þessu máli, þar á meðal uppdráttur af staðnum.