18.02.1935
Efri deild: 6. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 564 í B-deild Alþingistíðinda. (715)

9. mál, lántaka fyrir ríkissjóð

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þetta frv. er flutt í framhaldi af frv. því til laga um nýja lántökuheimild fyrir ríkissjóð, sem rætt var hér í hv. d. á föstudaginn og afgr. sem lög frá Alþingi þann dag. Þá var því lofað af mér, að ég skyldi flytja frv. um afnám lántökuheimildar, sem áður var í lögum og nýja heimildin átti að koma í staðinn fyrir, og geri ég það hér með. Þessu máli var hraðað í gegnum hv. Nd., af því að ég lofaði því þegar hitt frv. var samþ., að ég skyldi gera mitt til þess, að þessu máli yrði lokið í dag. Ég vil því leyfa mér að fara fram á, að þessi hv. d. veiti frv. þau afbrigði, sem nauðsynleg eru til þess að það geti orðið afgr. í dag.