07.03.1935
Neðri deild: 22. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 690 í B-deild Alþingistíðinda. (998)

30. mál, útrýming fjárkláða

Pétur Ottesen:

Þessi brtt. ber það með sér, að hv. landbn. er nú farin að draga nokkuð í land í þessu máli og er komin til nokkurrar viðurkenningar á því, að ekki sé gengið eins hreint til verks með þessu frv. eins og þeir vilja vera láta. En ég álít þessa brtt. ákaflega lítils virði, og hún er engan veginn til þess fallin að afnema þá annmarka, sem ég tel á frv. Og ég vil láta þessa getið, að við 3. umr. munum við hv. þm. A.-Sk. bera fram brtt. við þetta frv.