27.04.1936
Neðri deild: 57. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 879 í B-deild Alþingistíðinda. (1317)

124. mál, ríkisborgararéttur

Frsm. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Grg. fyrir því, hvers vegna frv. þetta er fram komið, er sú, að til allshn. hafa borizt þrjár umsóknir um ríkisborgararétt, þar sem umsækjendur leggja fram nægileg gögn fyrir, að þeir fullnægi settum skilyrðum samkv. 1., og mælir því n. öll með því, að frv. þetta verði samþ.