18.04.1936
Efri deild: 51. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 888 í B-deild Alþingistíðinda. (1378)

110. mál, tekjuöflun fyrir ríkissjóð

Magnús Jónsson:

Ég vil aðeins í þessu sambandi geta þess, að ég fyrir mitt leyti greiddi atkv. út frá því, að verið væri að leita leyfis til þess að taka frv. fyrir, þar sem of langt væri liðið frá þingbyrjun. Þess vegna vildi ég óska eftir því, að atkvgr. væri að minnsta kosti endurtekin, því að ég mundi hafa hagað mér öðruvísi við atkvgr. um afbrigði.