30.04.1936
Efri deild: 60. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1045 í B-deild Alþingistíðinda. (1595)

73. mál, fræðsla barna

*Jónas Jónsson:

Ég vil taka það fram, að ég álít mjög óviðkunnanlegt og óviðeigandi af hæstv. ráðh. að heimta, að svona stórt mál og vandasamt sé tekið til umr., áður en menntmn. hefir haft aðstöðu til að halda fund um það. Ef hæstv. ráðh. vill halda ræðu um málið, sem hann vildi ekki gera við 1. umr., þá hefi ég ekkert á móti að heyra hana, en hitt get ég ekki gengið inn á, að málið sé afgr. áður en n. hefir lokið athugun á því.