19.02.1936
Sameinað þing: 3. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í B-deild Alþingistíðinda. (18)

Kosning fastanefnda

Forseti (JBald):

Mér hafa borizt 2 listar, sem ég merki A og B. — Á A-lista eru þessi nöfn: BÁ, HV, JJ, StJSt, en á B-lista ÓTh, PM. MJ.

Þar sem ekki er stungið upp á fleirum en kjósa á í n., lýsi ég yfir því, að rétt eru kjörnir í utanríkismálanefnd þessir alþm.:

Bjarni Ásgeirsson,

Ólafur Thors,

Héðinn Valdimarsson,

Pétur Magnússon.

Jónas Jónsson.

Magnús Jónsson.

Stefán Jóh. Stefánsson.