21.04.1936
Neðri deild: 53. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1411 í B-deild Alþingistíðinda. (2003)

34. mál, atvinna við siglingar

Forseti (JörB):

Ég veit ekki, hvað þessu máli liggur mikið á, og get þess vegna ekki svarað því. En við höfum haft ærið mörg mál á dagskrá undanfarið og það er því búið að bíða eftir því, að þetta mál sé tekið fyrir, og þar sem ég bjóst við að nál. væri ágreiningslaust, þá var það tekið fyrir núna. (JakM: En því fer fjarri, að málið sé ágreiningslaust). En ég sá ekki, að það væri ágreiningur á nál., og því var málið tekið fyrir. En ég get mjög gjarnan frestað að taka málið fyrir. En ég vil þó benda hv. 3. þm. Reykv. á það, að þetta er aðeins 2. umr. málsins.