22.02.1936
Efri deild: 6. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 347 í B-deild Alþingistíðinda. (223)
3. mál, bráðabirgðatekjuöflun til ríkissjóðs
Frsm. (Bernharð Stefánsson):
Þetta frv. er borið fram samkv. 23. gr. stjórnarskrárinnar, því það var gefið út sem bráðabirgðalög 24. jan. þetta ár. Efnið er aðeins leiðrétting á l. frá 31. des. f. á., um bráðbirgðatekjuöflun til ríkissjóðs, því þegar þau lög voru útbúin, hafði fallið niður ein setning úr 2. gr. l. — Fjhn. hefir athugað þetta frv., og eins og sést á nál. á þskj. 24, leggur hún einróma til, að það verði samþ.