08.05.1936
Efri deild: 69. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 132 í C-deild Alþingistíðinda. (2294)

128. mál, alþýðutryggingar

*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég verð því miður að játa það, að þó undarlegt megi virðast, sagði þessi hv. þm. satt frá því, að eitt mál, frv. til laga um heimilisfang, slysaðist gegnum Nd. á 5 eða 10 mín. (MG: Það voru 3 dagar). En hv. þm. má ekki ofmetnast af því, eða láta sér það stíga til höfuðs, því mér er vel kunnugt um, að ýmsir hv. þm. greiddu því atkv. að óathuguðu máli.