03.04.1936
Neðri deild: 41. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 319 í C-deild Alþingistíðinda. (2586)

68. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

Finnur Jónsson:

Ég hefi ekki gefið hv. þm. G.-K. leyfi fyrir aðgang að reikningum eða skjölum félagsins, heldur að hann megi fá upplýsingar um það hjá skrifstofu skuldaskilasjóðs, hvort þær tölur, sem ég hefi borið hér fram, séu réttar, og ætlast svo til, að hann lýsi því yfir hér í hv. d., að hvaða niðurstöðu hann hefir komizt.