25.03.1936
Neðri deild: 33. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 368 í C-deild Alþingistíðinda. (2682)

86. mál, Ræktunarsjóður Íslands

Flm. (Sigurður Einarsson):

Það má vel vera, að svo sé háttað um lánveitingar úr ræktunarsjóði, að litla þýðingu hafi, hvort frv. er samþ. eða ekki, en mér finnst þó ekki ástæða til að rýra ákvæðin um, að þessi lán megi vera afborgunarlaus. — Óska ég svo, að málinu verði vísað til landbn., og ræður hún þá, hvaða afstöðu hún tekur.