05.05.1936
Neðri deild: 63. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 177 í D-deild Alþingistíðinda. (3210)

77. mál, síldveiði í Faxaflóa og fyrir suðurströnd landsins

Ólafur Thors:

Ég vildi aðeins leyfa mér að beiðast þess, að hæstv. forseti tæki fyrir 12. dagskrármálið. Ég skal lofa að vera mjög stuttorður í framsöguræðu minni og ekki gera neitt til þess, að umr. verði langar.