30.04.1936
Sameinað þing: 15. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 195 í D-deild Alþingistíðinda. (3243)

112. mál, skylduvinna

Jón Pálmason:

Af því að ég sé hér á dagskránni þáltill., sem nýlega er fram komin, snertandi lax- og silungsveiði, þá vildi ég leyfa mér að beina þeirri fyrirspurn til hæstv. forseta, hvað því veldur, að hann hefir ekki enn tekið á dagskrá þáltill. frá mér um skylduvinnu, sem lögð hefir verið fram fyrir alllöngu.