30.04.1936
Sameinað þing: 15. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 197 í D-deild Alþingistíðinda. (3253)

118. mál, vinnudeilur

Forseti (JBald):

Það stendur sérstaklega á með þessa þáltill., sem hv. 8. landsk. gerði að umræðuefni, með því að mál það, sem hún fjallar um, liggur einnig fyrir hv. Nd., en það er þó ekki ástæða til þess að þessi till. geti ekki komið fyrir til þess að ákveða um hana umr., en samning dagskrárinnar byggðist á misskilningi, því að skrifstofan skildi þetta þannig, að þau mál ætti aðeins að taka á dagskrá sem litlar umr. yrðu um. En ég mun að sjálfsögðu taka þessa till. fyrir til þess að ákveða, hvernig hún skuli rædd.