21.03.1936
Efri deild: 30. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 504 í B-deild Alþingistíðinda. (607)
71. mál, afmáning veðskuldbindinga úr veðmálabókum
Jón Auðunn Jónsson:
Ég þakka hv. n. fyrir undirtektir hennar við frv. og get fallizt á brtt. þá, er hún flytur, sem er sjálfsögð. Ég hafði ekki athugað það, að heimildin í lögunum frá 1933 hefir verið notuð í einstökum lögsagnarumdæmum, og þess vegna er ekki ástæða til að taka hana upp þar.