16.02.1937
Sameinað þing: 2. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í B-deild Alþingistíðinda. (12)

Kosning fastanefnda

*Hannes Jónsson:

Ég vil taka fram, til þess að fyrirbyggja misskilning, að ég meinti þann eina hv. þm. sem bauð sig fram utan flokka við síðustu kosningar og var kosinn á þing sem slíkur. Sá maður var áður sem slíkur í utanríkismálan., og ég tel það eðlilegt, að hann hafi sömu aðstöðu til þess að taka sæti í n. aftur. Þá var og talið eðlilegt, að n. væri skipuð öllum flokkum, og því fór ég fram á það, að allir flokkar hefðu þar fulltrúa nú.