10.04.1937
Neðri deild: 35. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 481 í B-deild Alþingistíðinda. (1246)

Afgreiðsla þingmála

*Gísli Guðmundsson:

Ég vildi leyfa mér að spyrjast fyrir um það, hvað liði afgreiðslu tveggja mála, sem ég hefi flutt hér, frv. til l. um Raufarhafnarlæknishérað og frv. til l. um byggingarsamvinnufélög. Hinu fyrra var útbýtt 1. marz og vísað til n. 4. marz, en hinu var vísað til n. 15. marz. Nál. hefir ekki verið útbýtt um þessi mál, og ég vildi leyfa mér að spyrjast fyrir, hvað liði afgreiðslu þeirra í hv. n.