31.03.1937
Efri deild: 29. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 410 í C-deild Alþingistíðinda. (1687)

83. mál, ríkisborgararéttur

*Jón Baldvinsson:

Ég gerði þessa aths. af því, að ég sá ekki af grg., að frv. væri komið frá ríkisstj. Í grg. segir, að allshn. hafi borizt nokkrar umsóknir um ríkisborgararétt, og fullyrt, að þeir, sem um hafi sótt, fullnægi skilyrðum gildandi laga, en mér fyndist réttara, að umsóknirnar hefðu gengið í gegnum stjórnarráðið, en það liggur ekki fyrir, að svo hafi verið.