19.04.1937
Neðri deild: 43. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 564 í C-deild Alþingistíðinda. (1842)

93. mál, hraðfrysting fisks

Stefán Jóh. Stefánsson:

Við 2. umr. tilkynnti hv. 6. landsk., að hann mundi bera fram brtt. við frv. við 3. umr. Frv. mun hafa verið tekið á dagskrá án þess að hann athugaði það. Hann er ekki staddur hér nú, en ég veit, að hann mundi óska eftir, að málinu yrði frestað, til þess að hann gæti borið fram sínar brtt., og ég geri ráð fyrir, að ég hefði kosið að greiða þeim atkv., en eins og málið liggur fyrir, greiði ég ekki atkvæði.