20.04.1937
Sameinað þing: 13. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 73 í D-deild Alþingistíðinda. (2428)
138. mál, brunaslys í Keflavík
Forseti (JBald):
Mér hefir borizt frá hv. þm. G.-K. skrifleg brtt. til vara við þáltilI. á þskj. 236, að í stað „héraðslækni“ í tillgr. komi: sýslumanni.
Af því að till. er bæði skrifleg og fram borin á fundinum, þarf tvennskonar afbrigði til þess að hún megi koma fyrir.