08.03.1937
Neðri deild: 16. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í B-deild Alþingistíðinda. (40)

6. mál, verðtollur

*Frsm. (Sigfús Jónsson):

Fjhn. hefir haft frv. þetta til meðferðar, og leggur hún til, að það verði samþ. eins og það liggur fyrir.

Lög þau, er hér um ræðir, hafa verið framlengd á hverju ári síðan 1926, að ég ætla, og er með frv. farið fram á, að þau verði enn framlengd til ársloka 1938, þar sem vafalaust er, að ríkissjóður muni hafa fulla þörf þeirra tekna, er lögin gefa í aðra hönd.