22.03.1937
Neðri deild: 24. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 241 í B-deild Alþingistíðinda. (579)

56. mál, útflutningur á kjöti

*Sigurður Kristjánsson:

Ég vil bara lýsa því yfir, að þetta eru tilhæfulaus ósannindi hjá hv. þm. Sannleikurinn er sá, að það voru aðrir, sem blönduðu sér inn í þetta mál og gerðu skandala, en ekki maðurinn, sem vann upp markaðinn. Það er því ekki annað en rógur og ósannindi, sem hv. þm. fer hér með.