04.03.1937
Efri deild: 14. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 30 í B-deild Alþingistíðinda. (59)

12. mál, skipsstjóraréttindi til handa Pétri Sigurðssyni

*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Það er rétt, sem hv. þm. segir, að það fé, sem ætlað er til sjómælinga á næsta ári, er mjög naumt skammtað, en að því er væntanlega forstöðu stýrimannaskólans snertir, þá vil ég upplýsa það, að núverandi skólastjóri hefir beðið um lausn, svo að það er ekki ótrúlegt, að breyt. verði þar á næstkomandi haust. (MG: Hvað er hann gamall?) 67 ára. — Ég sé svo ekki ástæðu til frekari andsvara út af því, sem hv. þm. sagði.