14.12.1937
Neðri deild: 49. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 866 í B-deild Alþingistíðinda. (1222)

106. mál, síldarverksmiðjur ríkisins

Forseti (JörB) :

Út af ummælum hv. síðasta ræðumanns vil ég geta þess, að mér er ekki kunnugt um, að nokkrar hótanir hafi borizt frá opinberri stofnun um það, að Alþ. mætti ekki ráða ráðum sínum.