22.12.1937
Efri deild: 56. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1261 í B-deild Alþingistíðinda. (1704)

Starfslok deilda

forseti (EÁrna) :

Með þessum fundi er nú lokið störfum þessarar deildar að þessu sinni. Við hverfum nú héðan og heim til heimila okkar, og ég vil vona, að við höfum nú margar góðar endurminningar frá samstarfinu á þessu þingi. Ég vil sérstaklega þakka öllum hv. deildarmönnum fyrir samvinnu og samstarf, því að það hefir verið mér sérstaklega ánægjulegt. Ég óska þeim svo góðs í framtíðinni, gleðilegra jóla og farsæls nýárs og þakka þeim fyrir samveruna.