19.10.1937
Neðri deild: 5. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 135 í D-deild Alþingistíðinda. (2399)

6. mál, Þjóðabandalagið

Bergur Jónsson:

Ég mun ekki fara neitt út í ræðu hv. flm. eða ræðu hæstv. atvmrh., hvað þá

almenna utanríkispólitík. Ég vil aðeins taka undir það með hæstv. atvmrh., að þar sem rannsókn hefir þegar farið fram á máli því, er till. fjallar um, og hæstv. ráðh. hefir nú gert grein fyrir þeim rannsóknum, sé óþarfi að samþ. till., og geri ég það að till. minni, að málinu verði vísað til hæstv. ríkisstjórnar.