17.12.1937
Sameinað þing: 15. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 104 í B-deild Alþingistíðinda. (63)

1. mál, fjárlög 1938

*Stefán Stefánsson:

Herra forseti! Ég á hér eina litla brtt. á þskj. 427, undir VIII. lið, um framlag til Öxnadalsvegar. Eftir að ég bar þessa brtt. fram hefir fjvn. hækkað framlagið til vega út frá Akureyri um 5 þús. kr. eða úr 10 þús. kr. upp í 15. þús. kr. Ég hefi einnig fengið það upplýst um það fé, sem varið hefir verið til vega út frá Akureyri, að það hefir mest gengið óskipt til Öxnadalsvegar, og með því að fjvn. hefir hækkað þennan lið um 5 þús. kr. og í trausti þess, að þessu fé verði áfram varið að mestu til Öxnadalsvegar, tek ég mína brtt aftur.