18.12.1937
Sameinað þing: 16. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í B-deild Alþingistíðinda. (70)

1. mál, fjárlög 1938

Forseti (JBald) :

Eins og kunnugt er, eiga að fara fram útvarpsumræður um fjárl. kl. 8 í kvöld. Verði eigi þá lokið umr. um einstakar till. þm., verður þeim haldið áfram að afloknum útvarpsumræðum., og vil ég biðja þá hv. þm., sem ekki hafa lokið sér af fyrir kl. 7, að vera þá viðstadda, til þess að mæla fyrir till. sínum, ef þeir óska þess.