15.02.1938
Sameinað þing: 1. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í B-deild Alþingistíðinda. (1)

Konungsboðskapur

Þessir þingmenn voru til þings komnir, og voru þeir allir á fundi, nema þm. Barð. og 9. lansk. þm., sem báðir voru veikir:

1. Árni Jónsson, 11. landsk. þm.

2. Ásgeir Ásgeirsson, þm. V.-Ísf.

3. Bergur Jónsson, þm. Barð.

4. Bernharð Stefánsson, 1. þm. Eyf.

5. Bjarni Ásgeirsson, þm. Mýr.

6. Bjarni Bjarnason, 2. þm. Árn.

7. Bjarni Snæbjörnsson, þm. Hafnf.

8. Brynjólfur Bjarnason, 1. landsk. þm.

9. Einar Árnason, 2. þm. Eyf.

10. Einar Olgeirsson, 5. þm. Reykv.

11. Eiríkur Einarsson, 10. landsk. þm.

12. Emil Jónsson, 7. landsk. þm.

13. Eysteinn Jónsson, 1. þm. S.-M.

14. Finnur Jónsson, þm. Ísaf.

15. Garðar Þorsteinsson, 8. landsk. þm.

16. Gísli Guðmundsson, þm. N.-Þ.

17. Guðrún Lárusdóttir, 2. landsk. þm.

18. Haraldur Guðmundsson, þm. Seyðf.

19. Helgi Jónasson, 2. þm. Rang.

20. Hermann Jónasson, þm. Str.

21. Héðinn Valdimarsson, 3. þm. Reykv.

22. Ingvar Pálmason, 2. þm. S.-M.

23. Ísleifur Högnason, 5. landsk. þm.

24. Jakob Möller, 2. þm. Reykv.

25. Jóhann Jósefsson, þm. Vestm.

26. Jón Baldvinsson, 9. landsk. þm.

27. Jón Pálmason, þm. A.-Húnv.

28. Jónas Jónsson, þm. S.-Þ.

29, Jörundur Brynjólfsson, 1. þm. Árn.

30. Magnús Jónsson 1. þm. Reykv.

31 Ólafur Thors, þm. G.- K.

32. Páll Hermannsson, 2. þm. N.-M.

33. Páll Zóphóníasson, 1. þm. N.-M.

34. Pálmi Hannesson, 1. þm. Skagf.

35. Pétur Halldórsson, 4. þm. Reykv.

36. Pétur Ottesen, þm. Borgf.

37. Sigurður E. Hlíðar, þm. Ak.

38. Sigurður Kristjánsson, 6. þm. Reykv.

39. Sigurjón Á. Ólafsson, 3. landsk. þm.

40. Skúli Guðmundsson, þm. V.- Húnv.

41. Stefán Stefánsson, 4. landsk. þm.

42. Steingrímur Steinþórsson, 2. þm. Skagf.

43. Sveinbjörn Högnason, 1. þm. Rang.

44. Thor Thors, þm. Snæf.

45. Vilmundur Jónsson, þm. N.-Ísf.

46. Þorbergur Þorleifsson, þm. A.-Sk.

47. Þorsteinn Briem, þm. Dal.

48. Þorsteinn Þorsteinsson, 6. landsk. þm.

Ókominn var til þings:

Gísli Sveinsson, þm. V.-Sk.

Konungsboðskapur.

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis, stóð upp forsætisráðherra, Hermann Jónasson, og las upp opið bréf, er stefnir Alþingi saman til reglulegs fundar þriðjudaginn 15. febrúar 1938, dags. 22. jan.

Því næst las forsætisráðherra upp konungsumboð sér til handa til þess að setja Alþingi, dags. s. d. Samkvæmt því umboði lýsti forsætisráðherra yfir, að Alþingi væri sett.

Síðan mælti forsætisráðherra:

„Minnumst ættjarðarinnar og konungs!“ og tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.

Forsætisráðherra kvaddi þessu næst elzta þingmanninn, Ingvar Pálmason, 2. þm. S.-M., til að stýra fundi þar til er kosinn væri forseti sameinaðs þings. Gekk aldursforseti þá til forsetastóls og tók við fundarstjórn.