12.05.1938
Neðri deild: 76. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1474 í B-deild Alþingistíðinda. (2218)

Starfslok deilda

Ólafur Thors:

Ég vil aðeins þakka hæstv. forseta fyrir hans ágætu og í alla staði réttsýnu fundarstjórn, sem hann að þessu sinni hefir haft, eins og raunar alltaf frá því hann settist í forsetastól.

Ég þakka góðar óskir hans í garð okkar þdm. og árna honum allra heilla, og veit ég, að e´g mæli það fyrir hönd allra þdm.