11.05.1938
Neðri deild: 74. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í D-deild Alþingistíðinda. (2824)

131. mál, ný læknishéröð

*Ólafur Thors:

Það er ekki að sjá, að þörfin sé brýn í héraði hv. flm. þáltill., úr því að hann bar þetta ekki fram á síðasta þingi. En í mínu kjördæmi hafa óteljandi raddir borið fram ósk um nýtt læknishérað. Ég vil segja, að ég ber allra manna sízt fram till., sem valda útgjöldum úr ríkissjóði. en þegar ég sá svo ötula forgöngu í þessu máli, stóðst ég ekki mátið að reyna að koma fram mínu héraði.