17.02.1938
Efri deild: 2. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í B-deild Alþingistíðinda. (3087)

Kosning fastanefnda

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég vil leyfa mér að bera fram þá ósk við hæstv. forseta og hv. þdm., að bætt sé nú tveimur mönnum við þessa nefnd, fram yfir það, sem gert er ráð fyrir í þingsköpum, þannig að hún nú verði skipuð fimm mönnum.