16.12.1939
Efri deild: 86. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 799 í B-deild Alþingistíðinda. (1519)

146. mál, sala á hálfum Víðidal

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson) :

Það er ekki margt að segja um frv. það, sem hér liggur fyrir. Að undanförnu hefir staðið deila um þetta fjalllendi, en nú virðist sú deila vera á enda kljáð, og því er þetta frv. nú borið hér fram. Hér er ekki um mikið að ræða, það á aðeins að afhenda þetta fjalllendi, sem litið virðist vera hægt að nota, í hendur upprekstrarfélagi Borgarhrepps til eignar.

Landbn. hefir athugað þetta frv. og er sammála um að leggja til, að það verði samþ. eins og það kom frá Nd.