24.11.1939
Efri deild: 68. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 888 í B-deild Alþingistíðinda. (1727)

48. mál, dragnótaveiði í landhelgi

*Ingvar Pálmason:

Það stendur svo á, að af þeirri n., sem þessu frv. mun verða vísað til, er einn nm. fjarverandi og sennilega ekki væntanlegur til Alþ. a. m. k. næstu daga. Vildi ég því mælast til þess, að Sjálfstfl. vildi tilnefna mann í n. í stað hv. þm. Vestm. (JJós), sem er fjarverandi, svo að n. geti verið fullskipuð.