19.04.1939
Neðri deild: 44. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 78 í B-deild Alþingistíðinda. (214)

46. mál, vátryggingarfélög fyrir vélbáta

*Pétur Ottesen:

Ég held, að það væri réttara. til þess að frv. næði fyrr tilgangi sínum, að við frv. væri sett gr. um það, að l. öðlist þegar gildi, því annars yrði að bíða þess tíma. að 1. birtust í Stjórnartíðindunum.

Þess vegna vil ég hér með leyfa mér að afhenda hæstv. forseta skriflega brtt., sem fer fram á þetta.