20.12.1939
Efri deild: 89. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1316 í B-deild Alþingistíðinda. (2640)

Afgreiðsla mála úr nefndum

Sigurjón Á. Ólafsson:

Þann 22. nóv. síðastl. var vísað til fjhn. frv. um stríðsslysatryggingu sjómanna, sem ég flutti hér í þessari hv. d. Ég vildi nú spyrjast fyrir um, hvort n. hefði í hyggju að skila nál. áður en þingi lýkur, eða hvort það er meining n. að láta ekki uppi neitt álit um frv.

Ég geri mér í sjálfu sér ekki mikla von um, að málið gangi fram á þessu þingi, en vildi samt, að álit n. sæist um það, hvort hún er mótfallin frv. eða ekki.