09.12.1939
Neðri deild: 79. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 324 í C-deild Alþingistíðinda. (3238)

125. mál, rafveitulánasjóður

Forseti (JörB):

Mér hefir borizt till. til rökst. dagskrár, svo hljóðandi:

„Í trausti þess, að ríkisstjórnin láti rannsaka þörf og skilyrði fyrir stofnun rafveitulánasjóðs, og að henni takist að finna réttlátar leiðir til þess að afla sjóðnum tekna, ályktar deildin að afgreiða ekki málið að þessu sinni og tekur fyrir næsta mál á dagskránni.“

Þessi rökst. dagskrá liggur þá einnig fyrir til umræðu.