30.03.1940
Neðri deild: 26. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 533 í B-deild Alþingistíðinda. (1277)

40. mál, alþýðutryggingar

Forseti (JörB):

Það er alveg rétt, sem hv. 8. landsk. sagði, að þessar brtt. voru ekki einungis nú fyrst að koma til útbýtingar hér í hv. d., heldur einnig úr prentun. Ég verð því, ef ég greiði atkv. um þær, að gera það án þess að ég hafi litið á eitt einasta orð í þeim.

Það kann að vera, að þetta geti lánazt við 2. umr., af því að 3. umr. er eftir, en óviðkunnanlegt er það.