16.04.1940
Efri deild: 36. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 569 í B-deild Alþingistíðinda. (1413)

8. mál, jarðhiti

Forseti (EÁrna):

Mér hefir borizt svo hljóðandi rökst. dagskrá frá hv. 1. þm. Reykv.:

„Þar sem enn virðist ekki að neinu ráði hafa verið framkvæmd rannsókn sú, sem gert er ráð fyrir með ályktun Alþ. 1937 um rannsókn jarðhitans á Íslandi (þskj. 470), og í því trausti, að sú rannsókn verði framkvæmd og löggjöf undirbúin samkv. 2. tölul. nefndrar þál., telur d. ekki að svo stöddu tímabært að afgr. frv. það, sem hér liggur fyrir, en tekur fyrir næsta mál á dagskrá.“