12.04.1940
Neðri deild: 34. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 757 í B-deild Alþingistíðinda. (1883)

16. mál, vegalög

Forseti (JörB):

Ég vil aðeins taka það fram, að mér þótti vænt um ummæli hv. frsm. samgmn., að skoðanamunur sá, sem á milli okkar hefir risið, skuli vera fallinn niður. Hitt þarf ég tæplega að minna hann á, að samkv. þingsköpum má ekki bera sama málsatriði, sem fellt hefir verið. upp í sömu deild á sama þingi.

Ég vil biðja þdm. að vera ekki langorða. Það er ekki hægt að hafa lengri umr. um þetta frv., því að það þarf að afgr. fleiri mál á þessum fundi.