09.04.1940
Neðri deild: 32. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 795 í B-deild Alþingistíðinda. (1959)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.

Einar Olgeirsson:

Herra forseti! Út af þessari yfirlýsingu vildi ég spyrja, hvort ekki sé meiningin að halda þingfund um þessi mál mjög bráðlega. Mér skildist yfirlýsing hæstv. forseta ekki vera beint svar við áskorun hv. þm. Snæf., heldur aðeins ná til flokksfundar þeirra þm., sem að ríkisstj. standa. Gerðir flokksfundar eru vitanlega ekki gerðir Alþingis.