12.04.1940
Sameinað þing: 18. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í D-deild Alþingistíðinda. (2546)

80. mál, vegagerð milli Reykjavíkur og Suðurlandsundirlendisins

*Jörundur Brynjólfsson:

Það er nú meir en liðinn venjulegur fundartími, svo ég mun ekki fjölyrða um þetta mál, en hér er um þýðingarmikið stórmál að ræða, svo það getur ekki komið til mála, að Alþ. geri ályktanir um málið að því óathuguðu. Það er því till. mín, að umr. verði frestað og málinu vísað til hv. allshn.